Formatyka hlutskörpust í hönnun Borgarlínugötugagna

Lifa, njóta, ferðast — endurtaka, tillaga Formatyka, varð hlutskörpust.
Lifa, njóta, ferðast — endurtaka, tillaga Formatyka, varð hlutskörpust. Mynd/Formatyka

Tillaga hönnunarteymisins Formatyka varð hlutskörpust í samkeppni Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Borgarlínunnar um götugögn, þ.e. bekki, upplýsingaskilti, skýli o.s.frv., á Borgarlínustöðvar.

Alls bárust 16 tillögur í samkeppnina, en tillaga Formatyka, sem samanstendur af þeim Krystian Dziopa og Iga Szczugiel, sem ber yfirskriftina Lifa, njóta, ferðast — endurtaka, var valin af dómnefnd.

„Tillagan skapar nútímalega táknmynd fyrir Borgarlínu framtíðarinnar og býr til sterkt kennileiti í umhverfinu sem eykur á gæði almenningsrýma. Tillagan byggir á fjölhæfu einingarkerfi og því er auðvelt að laga hana að fjölbreyttum aðstæðum innan borgarlandslagsins.

Öll götugögn eru að fullu aðlöguð og felld inn í tillöguna á snjallan hátt. Efnisval, áferðir og litir vinna vel saman og lífga upp á bæjarbraginn. Einstök tillaga með vandaðar lausnir á aðgengi allra,“ segir í umsögn dómnefndar, sem skipuð var Þráni Haukssyni, Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur, Björgu Fenger og Rut Káradóttur.

Krystian Dziopa og Iga Szczugiel mynda hönnunarteymið Formatyka.
Krystian Dziopa og Iga Szczugiel mynda hönnunarteymið Formatyka. Ljósmynd/Anna Margrét Árnadóttir

Með götugögnum er átt við hluti á borð við bekki, upplýsingaskilti, ruslatunnur, ljósastaura og minni skýli, en tilgangurinn með samkeppninni var að til verði banki af götugögnum sem hægt er að velja úr eftir þörfum á hverri stöð. Götugögnin, sem einkenna munu Borgarlínustöðvarnar í öllum sveitarfélögum, eiga að hafa samræmt og einkennandi yfirbragð sem mun stuðla að betri og heildstæðari borgarbrag auk þess að bæta upplifun notandans.

Annað sætið í samkeppninni hlaut tillagan Taktur eftir Önnu Leoniak og Bjarna Kristinsson en þriðja sætið hlotnaðist þeim Karli Kvaran, Lilju Kristínu Ólafsdóttur og Sahar Ghaderi með tillöguna Línan. Alls bárust 16 tillögur í samkeppnina en þrjár þeirra hlutu verðlaun, auk þess sem dómnefnd veitti þrem teymum sérstaka viðurkenningu fyrir vel útfærðar tillögur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert