Stakk upp í sig fullum poka af kannabis

AFP

Brotist var inn í bifreið sem stóð við Grindavíkurafleggjara á föstudaginn og úr henni stolið tveimur golfsettum, nokkrum pörum af íþróttaskóm og fatnaði. Lögreglan á Suðurnesjum hafði upp á manni sem grunaður var um græsku og viðurkenndi hann að hafa verið þar að verki.

Við handtöku kom í ljós að hann var með kannabispoka í vörslum sínum. Við öryggisleit á lögreglustöð stakk hann svo öðrum poka upp í sig. Lögregla skipaði honum að spýta pokanum út úr sér og varð hann við því. Í þeim poka reyndist einnig vera meint kannabis.

Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur um verslunarmannahelgina og fáeinir teknir úr umferð vegna vímuefnaaksturs. Einn í síðarnefnda hópnum ók jafnframt sviptur ökuréttindum.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af fimm bifreiðum sem voru ótryggðar eða óskoðaðar að því er fram kemur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert