Ellefu ára gömul stúlka sem var á gangi með hund fjölskyldunnar varð fyrir því í vikunni að laus hundur kom aftan að henni og beit hana til blóðs í hönd og læri á Suðurnesjum.
Tilkynning um þetta barst lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni. Lögregla ræddi við eiganda hundsins og send var tilkynning á Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlitið.