Listafólk má hefja æfingar á ný

Frá Íslandsmeistaramóti Street dansara á síðasta ári.
Frá Íslandsmeistaramóti Street dansara á síðasta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Snertingar verða heimilar við æfingar í sviðslistum, tónlist og við kvikmyndatöku frá næstkomandi föstudegi, 28. ágúst. Þetta kemur fram í nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem birt var í dag.

Hámarksfjöldi einstaklinga í sama rými mun áfram miðast við 100 einstaklinga og tveggja metra nándarregla verður áfram meginregla, þótt listamönnum sé heimilt að æfa verk sín á sviði með meiri nálægð og snertingu, sbr. reglur um íþróttaæfingar og –keppnir.

„Heimild þessir veitir listafólki svigrúm til þess að hefja sínar æfingar að nýju, að uppfylltum sóttvarnaráðstöfunum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir stóran og fjölbreyttan hóp skapandi fólks sem þarf að sinna sínum verkefnum og geta skipulagt menningarstarf næstu mánuðina.

Ég er bjartsýn á að listamenn muni nýta þessa heimild til æfinga á ábyrgan hátt. Við erum á réttri leið, en þurfum þó að bíða um sinn eftir að menningarlífið komist á fulla ferð,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert