Átta smit á Landspítala og viðbúnaðarstig hækkað

Annað smitið á Landspítalanum kom upp í skurðlækningaþjónustu en hitt …
Annað smitið á Landspítalanum kom upp í skurðlækningaþjónustu en hitt í Skaftahlíð. mbl.is/Ómar Óskarsson

Á fundi viðbragðsstjórnar og farsóttarnefndar Landspítala var í dag ákveðið að færa spítalann af óvissustigi á hættustig í samræmi við viðbragðsáætlun Landspítala. Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala.

Kemur þar fram að upp hafi komið smit meðal starfsfólks sem kallar á sóttkví starfsfólks sem kunni að hafa áhrif á starfsemi spítalans.

Að minnsta kosti átta smit hafa greinst, annars vegar í Skaftahlíð 24 þar sem skrifstofur og kennslurými eru til húsa og hins vegar í skurðlækningaþjónustu.

Umfangsmiklar skimanir fyrir Covid-19 fara fram vegna þessa í dag og er gert ráð fyrir að ríflega 200 starfsmenn verði í úrvinnslusóttkví þar til niðurstöður liggja fyrir og hluti þeirra í hefðbundinni sóttkví.

Fimm ráðstafanir gerðar

Þrátt fyrir það er ekki gert ráð fyrir að þjónusta við sjúklinga skerðist að svo stöddu, en unnið er að endurskipulagningu þjónustuþátta til að tryggja samfellda og örugga þjónustu.

Eftirfarandi ráðstafanir taka gildi nú þegar.

  1. Algjör grímuskylda er á öllum starfsstöðvum Landspítala, nema þegar matast er og skal þá halda tveggja metra fjarlægðarmörk. Inniliggjandi sjúklingar eru þó undanþegnir grímuskyldu.
  2. Alla fundi starfsfólks ber að halda með rafrænum hætti nema brýna nauðsyn beri til annars og gildir þá grímuskylda.
  3. Það starfsfólk sem getur sinnt störfum sínum að heiman skal gera það í samráði við sinn næsta yfirmann.
  4. Engin leyfi sjúklinga eru heimil.
  5. Aðeins einn gestur getur heimsótt hvern sjúkling á dag og allir gestir verða að bera grímu. Heimsóknartímar eru óbreyttir.

Á spítalanum eru nú ríflega 200 sjúklingar í eftirliti á Covid-19-göngudeild og tveir sjúklingar liggja á spítalanum vegna Covid-19-sýkingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert