Jason útnefndur Öðlingur ársins

Jason Ívarsson, íþróttakappi og félagsmálatröll úr Flóanum, er Öðlingur ársins …
Jason Ívarsson, íþróttakappi og félagsmálatröll úr Flóanum, er Öðlingur ársins 2019 hjá HSK. Ljósmynd/Engilbert Olgeirsson

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins, HSK, var haldið á Hvolsvelli fyrir helgi og við það tækifæri var Jason Ívarsson útnefndur Öðlingur ársins 2019. „Ég hélt að allir væru búnir að gleyma mér fyrir austan, því langt er síðan ég keppti þar, en viðurkenningin er ánægjulegri fyrir vikið,“ segir Jason, sem er kennari í 50% starfi við unglingadeild Austurbæjarskóla í Reykjavík.

Viðurkenningin er veitt fyrir ástundun og árangur í keppni á árum árum og félagsstörf og alúð við íþróttir fram eftir aldri eins og til dæmis þátttöku í mótum fyrir eldri keppendur. Jason fellur vel að þeirri skilgreiningu, var virkur í frjálsum og blaki í áratugi, meðal annars landsliðsmaður, hefur sinnt félagsstörfum í héraði og á landsvísu í um hálfa öld og heldur sér við í ringói.

Jason keppti fyrst í frjálsum fyrir Ungmennafélagið Samhygð 1968 og tók þátt í héraðsmótum HSK og landsmótum um árabil. „Ég byrjaði að keppa í blaki fyrir mitt gamla félag og endaði blakferilinn með því á héraðsmóti, en var í Þrótti í millitíðinni,“ segir hann lítillátur. Hann kynntist blaki þegar hann var í Héraðsskólanum á Laugarvatni og keppti á fyrsta héraðsmótinu 1974. Hann var HSK-meistari með Samhygð í mörg ár og var í liðinu 1982 sem var hársbreidd frá því að leika til úrslita í bikarkeppni Blaksambandsins. Hann er margfaldur Íslands- og bikarmeistari með Þrótti í Reykjavík og lék 15 landsleiki.

Enginn bolti í sveitinni

Jason er frá Vorsabæjarhóli í Flóa og keppti í frjálsum fyrir Samhygð nær óslitið frá 1968 til 2016.

„Í sveitinni var enginn bolti, ekki nógu margir til að ná í lið í fótbolta og handbolta og körfubolta þekkti enginn. Það voru bara frjálsar og beinast lá við að fara í þær. Við systkinin útbjuggum sandgryfju í túnfætinum og bræður mínir stukku stöng á hrífuskafti,“ rifjar hann upp. Sjálfur keppti hann einkum í grind og þrístökki, meðal annars fyrir unglingalandsliðið í landskeppni við Dani í Danmörku fyrir tæplega 50 árum. „Þá keppti ég líka í boðhlaupi,“ minnir hann á, en Jason keppti fyrir HSK í frjálsum íþróttum, blaki og körfubolta á landsmótum UMFÍ 1975 til 1994. Á nýliðnum árum hefur hann svo tekið þátt í nokkrum landsmótum UMFÍ 50+ og keppt í frjálsum og ringói. „Ringó er ágætis tilbreyting frá blakinu, fín eldriborgaraíþrótt,“ segir hann.

„Félagsmálin hafa líka tekið sinn tíma,“ segir Jason, en hann hefur verið formaður blaknefndar HSK, stjórnarmaður í blakdeild Þróttar, í stjórn Blaksambandsins í 20 ár og þar af formaður í 14 ár, en hann hætti á liðnu ári og var þá útnefndur heiðursformaður BLÍ. „Tíminn flaug og starfið gekk vel enda var ég með mjög gott fólk með mér. En allt tekur enda. Ég ætlaði mér aldrei að vera lengur en sex til átta ár.“ Auk þess hefur hann verið formaður dómaranefndar BLÍ og er enn virkur dómari. „Ef leitað er til mín og ég get aðstoðað geri ég það.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka