Alls greindust 52 kórónuveirusmit innanlands í gær en þetta kemur fram á covid.is. Af þeim var 41 (79%) í sóttkví þegar hann greindist en 11 utan.
Nú eru 1.240 í einangrun á landinu öllu og fækkar um tvo frá því í gær. Í sóttkví eru 2.780 og 1.486 eru í skimunarsóttkví.
Fimm bíða niðurstöðu mótefnamælingar eftir sýnatöku við landamæraskimun.
26 eru á sjúkrahúsi og af þeim eru fjórir á gjörgæsludeild Landspítalans.
Af þeim sem greindust innanlands höfðu 32 farið í einkennasýnatöku hjá Landspítalanum og Íslenskri erfðagreiningu en 685 slík sýni voru tekin í gær.
485 fóru í sýnatöku vegna þess að viðkomandi var í sóttkví og reyndust 20 þeirra vera með Covid-19. 571 fór í landamæraskimun í gær.