Jarðskjálfti af stærð 2,7 varð 2,4 kílómetra suðvestur af Hrómundartindi í nágrenni Hveragerðis nú á tólfta tímanum. Upptök skjálftans voru á 4,9 kílómetra dýpi.
Fram kemur á vef Veðurstofunnar að skjálftans hafi orðið vart í Hveragerði.
Einn minni skjálfti fylgdi í kjölfarið.