Sleppa óþarfa ferðalögum og frílystingum

Kort/Veðurstofa Íslands

Þrátt fyrir að heldur hafi lægt er útlit fyrir áframhaldandi rok og rigningu. Að sögn veðurfræðings má vera ljóst að veðrið á næstunni ætti ekki að hvetja fólk í óþarfa ferðalög og frílystingar. 

„Í nótt mældist stormur á nokkrum stöðvum á sunnanverðu landinu. Þegar þetta er skrifað í morgunsárið er mesti vindurinn afstaðinn og hafa gular vindviðvaranir runnið sitt skeið á enda. Þar með er ekki sagt að það verði einhver lognmolla á landinu í dag því víða verður austan strekkingur eða allhvass vindur. Einnig er búist við rigningu með köflum í flestum landshlutum og verður talsverð rigning um tíma á Suðuausturlandi og Austfjörðum. Seint í dag fer að lægja sunnanlands og í kvöld dregur einnig úr vindi fyrir norðan. Hiti á bilinu 2 til 8 stig.

Á morgun hvessir aftur og má búast við sterkari vindi en í dag. Útlit er fyrir að allhvöss norðaustanátt verði algeng en slær væntanlega í storm í vindstrengjum suðaustanlands og um landið norðvestanvert. Hann ætti að hanga þurr á Suður- og Vesturlandi, en annars staðar má búast við rigningu á láglendi og drjúg úrkoma austanlands.

Af ofansögðu má vera ljóst að veðrið á næstunni ætti ekki að hvetja fólk í óþarfa ferðalög og frílystingar,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands í morgun. 

Veðurspá fyrir næstu daga

Austan 10-18 m/s í dag. Víða rigning með köflum, talsverð úrkoma um tíma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Lægir í kvöld, fyrst með suðurströndinni.

Hvessir aftur í fyrramálið. Víða norðaustan 13-18 á morgun, en 18-23 í vindstrengjum suðaustanlands og um landið norðvestanvert. Rigning, einkum austanlands, en þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. Hiti 2 til 8 stig.

Á laugardag (fyrsti vetrardagur):

Gengur í norðaustan 13-18 m/s, en 18-23 suðaustanlands. Víða rigning, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti 2 til 8 stig, mildast syðst.


Á sunnudag:
Norðan 10-15, en 5-10 austanlands. Rigning eða slydda um landið norðanvert en bjartviðri sunnan til. Hiti breytist lítið.

Á mánudag og þriðjudag:
Norðaustanátt og dálítil slydda eða rigning á Norður- og Austurlandi en yfirleitt bjart sunnan heiða. Hiti 0 til 6 stig.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Norðan- og norðaustanátt með rigningu, slyddu eða snjókomu norðan- og austan til á landinu og hita um frostmark. Þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi og frostlaust að deginum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert