Einstaklingur var handtekinn og færður í fangageymslu í hverfi 113 eftir tilkynningu um heimilisofbeldi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu í dag.
Ökumaður var einnig stöðvaður í akstri í Reykjavík, reyndist hann án ökuréttinda og bifreiðin ótryggð.
Þá var tilkynnt um eld í stubbahúsi í hverfi 103, en slökkvilið mætti á staðinn og réð niðurlögum eldsins.