Landsbankahúsið á Selfossi til sölu

Hús Landsbankans á Selfossi hefur verið auglýst til sölu.
Hús Landsbankans á Selfossi hefur verið auglýst til sölu. Ljósmynd/Landsbankinn

Hús Landsbankans við Austurveg 20 á Selfossi hefur verið auglýst til sölu, en það hefur hýst útibú Landsbankans um áratuga skeið. Það eru breytingar á bankaþjónustu valda því að útibúið þarf nú minna húsnæði undir starfsemi sína, en starfsemin verður í húsinu þar til að starfsemi þess getur hafist á nýjum stað á Selfossi.

Fram kemur í færslu á vef bankans að húsið hafi verið reist á árunum 1949 til 1953 og hefur löngum verið talið eitt fallegasta húsið á Suðurlandi. Fyrsta útibú bankans á Selfossi var komið á laggirnar árið 1918 en flutti árið eftir í eigið húsnæði að Austurvegi 21. Þar var útibúið til ársins 1953 þegar það flutti í núverandi húsakynni.

Stór og mikil lóð fylgir húsinu.
Stór og mikil lóð fylgir húsinu. Ljósmynd/Landsbankinn

„Landsbankahúsið á Selfossi er byggt eftir frumteikningum Guðjóns Samúelssonar en honum entist ekki aldur til að fylgja verkinu eftir því hann lést árið 1950. Húsið er allt hið veglegasta en auk þess að hýsa bankastarfsemi voru í húsinu tvær íbúðir. Önnur í vesturenda annarrar hæðar ætluð útibússtjóra og hin ætluð húsverði í austurenda kjallarans. Samkomusalur og kaffistofa voru á rishæð. Austurendi annarrar hæðar var leigður út fyrstu árin,“ að því er segir í færslunni.

Grunnflötur hússins er rúmlega 300 fermetrar en samtals er skráð stærð hússins, að kjallara og risi meðtöldu 1.137 fermetrar, auk 77 fermetra bílskúrs. Efri hæðin er í útleigu. Lóð hússins er rúmlega 7.300 fermetrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert