Tveir létust vegna Covid-19 í nótt

mbl.is

Tveir létust vegna Covid-19 í nótt. Þeir voru á áttræðis- og níræðisaldri.

Því hafa fimm alls látist vegna Covid-19 í þessari bylgju faraldursins.

Fimmtán hafa alls fallið frá vegna Covid-19 síðan faraldurinn fór fyrst að breiðast út hérlendis. Á spít­ala eru 67 sjúk­ling­ar veik­ir af Covid-19 og af þeim eru fjórir á gjör­gæslu.

Landspítali greinir frá dauðsföllunum á vefsíðu sinni og vottar aðstandendum samúð sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert