Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfuknattleik, lét vel að sér kveða þegar lið hans Bilbao tapað naumlega fyrir Barcelona á heimavelli, 72:68, í lokaumferð spænsku A-deildarinnar í kvöld.
Bilbao hafnaði í 13. sæti af 18 liðum, en átta efstu liðin fara í úrslitakeppni um spænska meistaratitilinn.
Tryggvi Snær nýtti mínúturnar vel í leik kvöldsins en hann skoraði níu stig, tók átta fráköst og gaf eina stoðsendingu á 18 og hálfri mínútu.