Mörg símtöl vegna barna sem komist hafa í nikótínpúða

Dósir með nikótínpúðum, undir íslensku neftóbaki.
Dósir með nikótínpúðum, undir íslensku neftóbaki. mbl.is/Eggert

Eitrunarmiðstöð Landspítala hafa borist of mörg símtöl undanfarið vegna barna sem komist hafa í nikótínpúða, segir í frétt á vef spítalans þar sem brýnt er fyrir fólki að geyma nikótínpúða þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Bent er á að nikótín er mjög eitrað efni, sérstaklega litlum börnum, og lítið magn getur valdið mjög alvarlegri eitrun.

„Geymið allar nikótínvörur þar sem börn hvorki ná til né sjá, helst í læstum hirslum. Ef einhver verður fyrir eitrun hringið þá í 112 eða Eitrunarmiðstöðina 543 2222 fyrir sérfræðiráðgjöf,“ segir á vef spítalans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert