18 stiga frost á Sandskeiði

Kort/Veðurstofa Íslands

Mjög kalt er enn í veðri og mældist frostið 18,3 gráður á Sandskeiði og 18,5 gráður í Árnesi. 17,6 stiga frost var á Þingvöllum. Snýst í vaxandi suðaustanátt eftir hádegi og í kvöld fer að rigna eða snjóa sunnan- og vestanlands. Það er sjö stiga frost á höfuðborgarsvæðinu og því er ábending lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í gær enn í gildi. Að búa sig vel áður en haldið er út úr húsi. Aftur á móti er eins stigs hiti í Bolungarvík og hitinn almennt yfir frostmarki á Vestfjörðum.

„Fremur hægur vindur og víða léttskýjað framan af degi, og frost yfirleitt á bilinu 2 til 10 stig. Snýst í vaxandi suðaustanátt eftir hádegi og þykknar upp með stöku éljum sunnan til á landinu. Suðaustan 10-18 m/s í kvöld og rigning eða snjókoma með köflum sunnan- og vestanlands, en heldur hægari vindur og þurrt að mestu fyrir norðan. Það hlýnar með deginum, hiti um og yfir frostmarki seint í kvöld.

Lægir og dregur úr úrkomu í nótt, en fer aftur að rigna sunnan- og suðaustanlands í fyrramálið. Snýst í vaxandi norðanátt síðdegis á morgun með snjókomu, slyddu eða rigningu um landið norðan- og austanvert, en styttir víða upp sunnan heiða,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Vetrarfærð er um norðanvert landið en að mestu greiðfært um landið sunnanvert. Á Suðvesturlandi er víðast hvar greiðfært en þó eru hálkublettir á Hafnavegi og hálka á Krýsuvíkurvegi.

Hálka eða hálkublettir á fjallvegum á Vesturlandi en að mestu greiðfært á láglendi.
Hálka eða hálkublettir nokkuð víða á Vestfjörðum og það sama á við um Norðurland samkvæmt vef Vegagerðarinnar.

Hálka er á flestum leiðum á Norðausturlandi en snjóþekja á Hólasandi. Á Austurlandi er hálka
mjög víða en greiðfært með ströndinni sunnan Reyðarfjarðar. Snjóþekja er á Mjóafjarðarheiði.

Veðurspáin fyrir næstu daga

Fremur hæg suðlæg átt og víða léttskýjað, frost 2 til 10 stig. Vaxandi suðaustanátt eftir hádegi og þykknar upp með stöku éljum S-til. Suðaustan 10-18 m/s í kvöld og rigning eða snjókoma með köflum S- og V-lands, en heldur hægari og þurrt að mestu fyrir norðan. Hlýnandi, hiti um og yfir frostmarki seint í kvöld.

Lægir og dregur úr úrkomu í nótt, en fer aftur að rigna S- og SA-lands í fyrramálið. Snýst í vaxandi norðanátt síðdegis á morgun með snjókomu, slyddu eða rigningu um landið N- og A-vert, en styttir víða upp sunnan heiða.

Á föstudag:
Suðaustan og austan 5-10 m/s og rigning með köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Snýst í vaxandi norðanátt síðdegis með snjókomu, slyddu eða rigningu um landið N- og A-vert, en styttir upp S- og V-lands. Hiti 0 til 6 stig, en vægt frost í innsveitum á N-landi.

Á laugardag:
Norðan- og norðvestan 15-20 um landið A-vert, annars hægari vindur. Snjókoma eða rigning N-lands, en þurrt að kalla sunnan heiða. Dregur úr úrkomu og lægir eftir hádegi. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:
Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en dálítil él við S-ströndina. Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landsins.

Á mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt og þurrt að kalla, frost 1 til 9 stig. Dálítil rigning eða slydda með S-ströndinni og hiti 0 til 4 stig.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir vestlæga átt með dálitlum éljum víða um land.

Hugleiðingar veðurfræðings

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert