Lægð nálgast úr suðri

Kort/Veðurstofa Íslands

Hægur vindur á landinu í dag og víða þurrt en sums staðar snjómugga suðaustanlands. Á morgun nálgast lægð úr suðri, henni fylgir ákveðin norðaustanátt með dálítilli snjókomu eða éljum á Austurlandi en bjartviðri vestanlands. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.

Á þriðjudag er útlit fyrir norðanátt með éljum fyrir norðan og austan en vaxandi sunnanátt seint á miðvikudag og rigningu eða slyddu vestan til á landinu um kvöldið að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurspáin fyrir næstu daga

Fremur hæg breytileg átt í dag. Skýjað með köflum og þurrt N-til á landinu en sums staðar dálítil snjókoma sunnan heiða, einkum SA-lands. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.
Gengur í norðaustan 8-15 á morgun. Lítilsháttar snjókoma eða él á Austurlandi en bjartviðri V-lands.

Á mánudag:

Gengur í norðaustan 8-15 m/s með dálítilli snjókomu eða éljum austan til á landinu en bjartviðri V-lands. Frost víða 0 til 5 stig en hlánar á SA-landi.

Á þriðjudag:
Norðlæg átt 5-13, skýjað og lítilsháttar snjókoma eða él N- og A-lands. Frost 0 til 5 stig.

Á miðvikudag:
Vestlæg átt, bjart með köflum og frost 2 til 10 stig. Vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa V-til seinni partinn, hvassviðri með slyddu og síðar rigningu þar um kvöldið.

Á fimmtudag:
Sunnanátt og rigning eða slydda en úrkomulítið NA-lands. Hiti 2 til 7 stig.

Á föstudag og laugardag:
Útlit fyrir sunnanátt með skúrum eða éljum sunnan- og vestan til á landinu. Hiti nálægt frostmarki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert