Harður árekstur tveggja fólksbifreiða varð á Reykjanesbraut skammt frá Mjódd klukkan kortér fyrir tvö í dag. Engin slys urðu á fólki.
Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Dalvegi í Kópavogi segir að ekki hafi frekari upplýsingar borist um málið að svo stöddu en ljóst að enginn hafi slasast.
Samkvæmt dagbók lögreglu hefur dagurinn verið rólegur framan af.
Í morgun, klukkan tuttugu mínútur yfir átta, var brotist inn í nýbyggingu í Kópavogi og þaðan stolið verkfærum.
Klukkan tíu mínútur yfir níu var einstaklingur handtekinn vegna sölu og dreifingar fíkniefna í miðbænum.