Lögreglan á Akureyri segir að fljúgandi hálka sé í bænum, bæði á götum og gangstéttum, en þar er bæði rok og rigning.
Að sögn varðstjóra er fólk beðið um að leggja tímanlega af stað til vinnu og skóla í dag vegna hálkunnar. Nauðsynlegt sé að fara með ýtrustu gát enda mjög erfitt að komast leiðar sinnar.