Vonskuveður í vændum

Kort/Veðurstofa Íslands

Suðvestan og vestan 10-18 m/s og rigning fyrri hluta dags en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 1 til 6 stig. Það verður úrkomuminna eftir hádegi, en síðdegis og í kvöld snýst í vaxandi norðlæga átt með snjókomu eða éljum og ört kólnandi veðri.

Það hvessir í nótt og í fyrramálið er útlit fyrir norðvestanstorm eða -rok á austanverðu landinu, og auk þess verður hríðarveður á Norðausturlandi. Í svona veðri skapast afar varasöm akstursskilyrði, og eru viðvaranir í gildi á þessum slóðum. Á vestanverðu landinu verður hins vegar talsvert hægari vindur og dálítill éljagangur. Frost 2 til 10 stig.

Eftir hádegi á morgun fer að draga úr vindinum, og það styttir upp um landið norðanvert. Annað kvöld verður víða hægviðri en allhvöss eða hvöss norðvestanátt austast á landinu að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur í dag og næstu daga

Suðvestan 10-18 m/s og rigning eða slydda, en úrkomulítið A-lands. Hiti 1 til 6 stig. Dregur úr úrkomu eftir hádegi, en snýst í vaxandi norðlæga átt síðdegis og í kvöld með snjókomu eða éljum og ört kólnandi veðri.

Norðvestan 20-28 m/s í fyrramálið, en hægari vindur um landið V-vert. Snjókoma N- og A-lands, og dálítil él V-til, annars þurrt að kalla. Frost 2 til 10 stig. Dregur úr vindi eftir hádegi og styttir upp um landið N-vert. Víða hægviðri annað kvöld en norðvestan 13-20 A-til.

Á laugardag:
Norðvestan 20-28 m/s, en mun hægari vindur á V-verðu landinu. Snjókoma N- og A-lands, og dálítil él SV-til, annars þurrt að kalla. Frost 2 til 12 stig. Dregur úr vindi og styttir víða upp eftir hádegi. Hæg breytileg átt um kvöldið, en norðvestan 13-20 A-lands.

Á sunnudag:
Norðlæg átt 5-13 og léttskýjað um landið S- og V-vert, en norðvestan 13-20 og dálítil él NA-til. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:
Norðaustlæg átt 5-10 og bjart veður, en skýjað um landið N-vert og él við A-ströndina. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Ákveðin austlæg átt og skýjað, en hægari vindur og léttir til um landið N-vert. Frost 1 til 8 stig, en frostlaust við S-ströndina.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með lítils háttar vætu sunnanlands, en áfram bjart og kalt fyrir norðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert