Hættuástandi aflýst á Hofsósi

Svona var staðan á Hofsósi áður en farið var að …
Svona var staðan á Hofsósi áður en farið var að brytja snjóhengjuna niður. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta gekk mjög vel. Var erfitt og snúið á köflum en kláraðist klukkan hálfellefu í gærkvöldi,“ segir Stefán Vagn Stef­áns­son, yf­ir­lög­regluþjónn á Norður­landi vestra, í sam­tali við mbl.is.

Stór snjóhengja fyrir ofan hús Vest­urfara­set­urs­ins á Hofsósi var brytjuð niður en rýma þurfti hafnarsvæðið vegna snjóflóðahættu aðfaranótt miðvikudags.

„Nú er verið að hreinsa svæðið og verja að það komi aftur svona hengjumyndun í vetur,“ segir Stefán.

Hættuástandi hefur verið aflýst en svæðið er enn lokað á meðan hreinsunarstarf er í gangi.

Stefán býst við því að svæðið verði lokað fram eftir degi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert