Úr 260 niður í átta gistinætur

Á tjaldstæðinu í Skaftafelli í góðviðri.
Á tjaldstæðinu í Skaftafelli í góðviðri. mbl.is/RAX

Átta gistinætur voru skráðar á tjaldstæðinu í Skaftafelli í Vatnajökulsþjóðgarði í janúar. 260 voru hins vegar skráðar á sama tímabili í fyrra og 370 árið þar á undan.

Steinunn Hödd Harðardóttir, þjóðgarðsvörður á suðursvæði þjóðgarðsins, segir fækkunina gríðarlega, einkum í ljósi þess, að að öðru leyti hefur vetrarferðamönnum verið að fjölga á svæðinu undanfarin ár.

Þjónustumiðstöðin er opin en svo virðist sem ferðamenn veigri sér sumir við að leita þangað inn, ef til vill vegna ástandsins, að sögn Steinunnar.

Á Þingvöllum er nærri mannlaust og þjónustumiðstöðin lokuð á virkum dögum. Þar og víðar bíða menn sumarsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert