Sjö jarðskjálftar að stærð 3 eða yfir hafa orðið á Reykjanesskaga eftir klukkan 20 í kvöld.
Meðal annars voru tveir skjálftar 3,0 að stærð og urðu þeir klukkan 22:15 og 22:22. Þriðji var 3,6 að stærð og varð klukkan 22:37. Þá hafa í kvöld orðið tveir skjálftar að stærð 3,1. Skjálfti að stærð 3,6 varð á miðnætti og skjálfti að stærð 3,4 varð klukkan 23:48.
Stærsti skjálfti dagsins í dag var 5,1 að stærð og varð hann klukkan 16:35.
Greint var frá því í dag að vísindaráð almannavarna telji að færslur á yfirborði jarðar, sem gervihnattamyndir sýna fram á, verði best skýrðar með því að kvikugangur sé að myndast undir því svæði þar sem mesta jarðskjálftavirkni hefur verið síðustu daga.
Skjálftar geta valdið færslu á yfirborði jarðar en að mati vísindaráðs eru þær það miklar að líklegra er að kvikugangur sé að valda opnun.
Ein mögulegra sviðsmynda ráðsins er sú að kvikuinnskot haldi áfram í nágrenni við Fagradalsfjall og í kjölfarið getur tvennt gerst: Í fyrsta lagi að hún minnki aftur og kvikan storkni en í öðru lagi að hún leiði að lokum til flæðigoss með hraunflæði, sem mun þó líklega ekki ógna byggð.
Mikil jarðskjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga frá því skjálfti af stærð 5,7 reið þar yfir á miðvikudag.
Fréttin hefur verið uppfærð.