Söluandvirði hljóðrita frá útgefendum og dreifendum jókst um 18% á milli áranna 2018 og 2019. Það er fjórða árið í röð sem söluandvirðið hækkar að raunvirði eftir nær samfelldan samdrátt frá því um aldamót. Söluaukninguna má alfarið rekja til greiðslna á stafrænum skrám í streymi á sama tíma og andvirði af sölu geisladiska og hljómplata hefur dregist saman ár frá ári.
Nærri lætur að 90% söluandvirðisins árið 2019 stafi af greiðslum fyrir hlustun á tónlistarveitur. Samdráttur í sölu geisladiska og hljómplata kemur einnig fram í sífellt færri útgefnum titlum diska og platna. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.
Heildarverðmæti seldra geisladiska, hljómplata og stafrænna skráa árið 2019 nam 802 milljónum króna, þar af voru greiðslur fyrir stafrænar skrár 713 milljónir króna en sala á diskum og plötum 88 milljónir. Þrátt fyrir talsverða aukningu í sölu hljóðrita undanfarin þrjú ár, sem alfarið er vegna greiðsla til tónlistarveitna, var söluverðmætið reiknað á föstu verðlagi um helmingi minna árið 2019 en þegar best lét árið 1999.
Samkvæmt upplagseftirliti Félags hljómplötuútgefenda nam áætluð sala tónlistarveitunnar Spotify til notenda hér á landi tæpum 700 milljónum króna árið 2019. Það jafngildir því að 87% af heildarsöluverðmæti hljóðrita og allt að 98% af streymdri tónlist hafi farið í gegnum tónlistarveituna eða samanlagt fast að 90% tónlistarsölunnar.
Útgáfa og sala hljómdiska og -platna hefur dregist nær samfellt saman um langt árabil. Útgáfum hljóðrita (á geisladiskum, plötum og snældum) hefur fækkað sjöfalt frá árinu 2006 til ársins 2019 eða úr 301 titli í 41.
Samdráttur í sölu eintaka frá útgefendum og dreifendum hefur verið enn meiri. Frá aldamótum lætur nærri að seldum eintökum hafi fækkað átjánfalt. Árið 2019 seldust hér á landi 48 þúsund eintök geisladiska og hljómplatna samanborið við 868 þúsund eintök árið 1999 er fjöldi seldra eintaka náði hámarki. Seldum eintökum á íbúa hefur fækkað úr 3,1 árið 1999 í 0,1 árið 2019.
Ört vaxandi tekjur af streymi tónlistar hin síðustu ár vegur að litlu leyti upp á móti þeim samdrætti sem orðið hefur í tekjum af sölu tónlistar frá því um síðustu aldamót. Árið 2019 nam söluverðmæti hljóðrita frá dreifendum 802 milljónum króna samanborið við 1.586 milljónir króna árið 1999 reiknað á föstu verðlagi.