Nýtt starfsumhverfi í Þjóðkirkju

Prestar á Skálholtshátíð.
Prestar á Skálholtshátíð. mbl.is/Sigurður Bogi

Prestar sem koma nýir til starfa á vettvangi þjóðkirkjunnar verða héðan í frá ráðnir með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti, samkvæmt nýjum reglum sem kirkjuþing samþykkti í síðustu viku.

Starfsumhverfið nú er orðið líkt því sem gerist á almennum vinnumarkaði og er mótað út frá samningum við ríkið frá 2019, sem fólu í sér aukið sjálfstæði kirkjunnar.

Fyrir nokkrum dögum lagði dómsmálaráðherra fram á Alþingi fumvarp til nýrra laga um þjóðkirkjuna. Með því verður regluverkið fært til nútímans og annað aftengt, svo sem tilskipun um húsvitjanir frá árinu 1746, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert