Guðlaug Einarsdóttir skipuð skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

Guðlaug Einarsdóttir.
Guðlaug Einarsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráð Íslands

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Guðlaugu Einarsdóttur skrifstofustjóra á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu. Guðlaug var valin úr hópi 12 umsækjenda um embættið að undangengnu mati ráðgefandi nefndar sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda í samræmi við lög um Stjórnarráð Íslands.

Guðlaug er með BS-próf í hjúkrun og embættispróf í ljósmóðurfræðum frá Háskóla Íslands. Einnig er hún með MPM-próf í verkefnastjórnun og hefur hlotið alþjóðlega vottun í verkefnastjórnun IPMA Level C og D.

Þá er hún jafnframt með diploma frá Háskóla Íslands í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Í mati hæfnisnefndarinnar er bent á að Guðlaug hafi því háskólamenntun og framhaldsmenntun á tveimur sviðum sem nýtist mjög vel í starfi, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.

Guðlaug hefur starfað sem sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu/velferðarráðuneytinu frá september 2018. Frá 2011 til 2018 starfaði hún hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, fyrst sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, síðan sem verkefnastjóri frá 2013 og sem deildarstjóri hjúkrunardeilda (Fossheima og Ljósheima) frá 2016 en þar voru rúmlega 70 starfsmenn og loks starfaði hún sem ljósmóðir á tveimur sjúkrahúsum í Danmörku, samtals í rúmlega tvö ár.

Í störfum sínum hjá ráðuneytinu hefur Guðlaug m.a. unnið að aðgerðaáætlun í þjónustu við einstaklinga með heilabilun, greiningu og eftirfylgni á þörf fyrir hjúkrunarrými og stýrt starfshópi um gerð heildrænnar skýrslu um barneignarþjónustu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert