Dýrasta íbúðin kostar 165 milljónir króna

Hverfisgata 92Efsta íbúðin í græna húsinu – húsi B – …
Hverfisgata 92Efsta íbúðin í græna húsinu – húsi B – kostar 165 milljónir Teikningar/ONNO/Batteríið

Félagið Rauðsvík hefur hafið sölu 24 íbúða á Hverfisgötu 92. Þær eru frá 68,6 til 146,4 fermetrar og kosta 55,9 til 165 milljónir króna. Þá er til sölu verslunarrými á jarðhæð.

Rauðsvík hóf sölu 70 íbúða á Hverfisgötu 85-93 sumarið 2019 og svo í kjölfarið á samtals sex íbúðum á Hverfisgötu 84 og 86. Salan fór rólega af stað en framboð var þá mikið á nýjum íbúðum í miðborginni. Salan tók svo við sér í kjölfar vaxtalækkana Seðlabankans í fyrravor, líkt og á fleiri miðborgarreitum.

Atli Kristjánsson, framkvæmdastjóri Rauðsvíkur, segir búið að selja 68 af 70 íbúðum á Hverfisgötu 85-93. Hin tvö húsin séu uppseld.

Spurður í Morgunblaðinu í dag um tímasetninguna á sölunni á Hverfisgötu 92 segir Atli framkvæmdum að ljúka. Því sé komið að því að hefja söluna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert