Lögin draga úr samkeppnishæfni Íslands

Einstaklingar munu enn þurfa að sækja um undanþágu hjá dómsmálaráðherra …
Einstaklingar munu enn þurfa að sækja um undanþágu hjá dómsmálaráðherra til að eignast fasteign í þéttbýli eins og höfuðborgarsvæðinu.

„Lögin ganga of langt í að girða fyrir eignarhald erlendra aðila á eignum á Íslandi,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Í fyrra var gerð lagabreyting þar sem takmarkað var að útlendingar gætu keypt jarðir.

Samtök iðnaðarins benda á að þá hafi verið gengið alltof langt og að drög að nýju frumvarpi dugi skammt til að leiðrétta það. Erlendir aðilar verði enn að sækja um leyfi hjá ráðherra til að kaupa fasteign.

„Við erum alltaf að tala um að það þurfi að efla fjórðu stoðina sem er hugverkaiðnaður og til þess að gera það þarf erlenda sérfræðinga til landsins,“ segir Sigurður og bendir á að hugverkaiðnaðurinn þurfi erlenda fjárfestingu og þetta sé hindrun.

„Það verður bara ákjósanlegra fyrir fjárfesta og erlenda sérfræðinga að horfa til annarra landa,“ segir Sigurður í Morgunblaðinu í dag og bætir við: „Það er bara kristaltært, þetta dregur úr samkeppnishæfni Íslands ef það verður ekki brugðist við þessu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert