Leit hafin að nýju varðskipi

Um borð í Þór. Tilkynnt um kaup á nýju varðskipi …
Um borð í Þór. Tilkynnt um kaup á nýju varðskipi sem mun fá nafnið Freyja. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leit er hafin að nýju varðskipi Íslendinga, en sem kunnugt er mun það fá nafnið Freyja.

Ríkiskaup hafa fyrir hönd Landhelgisgæslunnar auglýst eftir áhugasömum seljendum slíkra skipa. Auglýsingin er birt á EES-svæðinu og er skilafrestur til 13. maí næstkomandi.

Fram kemur í auglýsingu Ríkiskaupa að verið sé að leita að þjónustuskipi eða sambærilegu skipi. Það má ekki vera eldra en frá árinu 2005. Það skal vera 74-95 metrar að lengd og lágmarksganghraði skal vera 15 sjómílur á klukkustund. Þriggja manna starfshópur undirbýr kaupin og miðast ferlið við að varðskipið Freyja verði fullbúið og komið til Íslands snemma í haust.

Þegar varðskipið Týr var tekið í slipp í janúar sl. komu í ljós alvarlegar bilanir. Óraunhæft var talið að fara í kostnaðarsamar viðgerðir og því samþykkti ríkisstjórnin tillögu Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra þess efnis að þegar verði hafist handa við kaup á nýlegu skip, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert