Ljósmyndakeppni mbl.is stendur nú í fullum gangi en þema keppninnar í ár er flug og er gerð sú krafa að ljósmyndirnar tengist því viðfangsefni með einum eða öðrum hætti.
Til að taka þátt í keppninni hafa þátttakendur val um að senda myndirnar beint í gegnum innsendisíðu mbl.is eða birta þær á samfélagsmiðlinum Instagram ásamt myllumerkinu mblflug.
Keppnin hófst í síðustu viku og mun standa yfir til 31. ágúst en til mikils er að vinna. Keppendur sem hafna í efstu tveimur sætunum fá Samsung Galaxy S21+ síma og fyrir þriðja sætið er gjafakort að verðmæti 100 þúsund krónur.