Einn vann tvær milljónir

Einn Íslendingur var með allar tölur réttur í Jókernum í kvöld og fékk því tvær milljónir í sinn hlut. Miðinn var keyptur á Lotto.is.

Auk þess fengu tveir aðrir Íslendingar annan vinning í Jókernum og fá því 100.000 kr. hvor. Annar miðinn var í áskrift en hinn var keyptur á Olís, Norðlingaholti. 

Einn heppinn í Noregi fékk fyrsta vinning í Víkinglotto og fær því rúmar 670 milljónir. Annar vinningur fór einnig til Noregs og fékk sá tæpar 22 milljónir. Tveir Íslendingar fengu þriðja vinning og fékk hvor þeirra í sinn hlut rúmar 831.000 krónur.

Vikinglotto tölur kvöldsins: 19 - 21 - 29 - 36 - 44 - 48

Vikingatalan: 5

Jókertölur kvöldsins: 6 - 0 - 5 - 9 - 4

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert