Heiðrún leyfir sér að vera bjartsýn

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, er ánægð að sjá ákvæði …
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, er ánægð að sjá ákvæði í stjórnarsáttmála um framtíð sjávarútvegsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýn og ánægð með að það hafi að að nokkru leyti verið hugað að framtíð fyrir íslenskan sjávarútveg og fiskeldi,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar.

Þar verður sett á fót nefnd sem mun fjalla um framtíð sjávarútvegsins og m.a. fjalla um hvernig hægt sé að auka gagnsæi í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi og þá sérstaklega meðal stærstu fyrirtækja landsins.

Fulltrúar allra flokka talað vel um fiskveiðistjórnunarkerfið

Svandís Svavars­dótt­ir fyrr­ver­andi heil­brigðisráðherra tek­ur við sjáv­ar­út­vegs­mál­un­um í mat­væla- sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðuneyt­inu. Spurð hvort hún sjái breyt­ing­ar í sjón­máli, til dæm­is á fisk­veiðistjórn­un­ar­k­ef­inu, seg­ir Heiðrún:

Í aðdraganda kosninga töluðu all­ir flokk­arn­ir þrír um að ís­lenska fisk­veiðistjórn­un­ar­kerfið hafi borið góðan ávöxt og í sam­an­b­urði við aðrar þjóðir vær­um við með eitt besta fisk­veiðistjórn­un­ar­kerfi í heimi. Að því leyt­inu til finnst mér minna máli skipta hvaða ráðherra skip­ast í embættið, ef rík­is­stjórn­in er ein­huga um þessa afstöðu, enda felst í henni heilbrigð skynsemi,“ seg­ir Heiðrún.

Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra tekur nú við sjávarútvegsmálunum, sem og …
Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra tekur nú við sjávarútvegsmálunum, sem og matvæla- og landbúnaðarmálum. mbl.is/Árni Sæberg

Hún óttast þó að enn verði beðið með að skapa heildstæða framtíðarsýn fyrir sjávarútveginn með skipun nefndar, sem fær það verkefni að kortleggja áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins. 

Nefndir vel kunnulegar í sjávarútveginum

„Áherslan virðist vera á að auka samkeppnishæfni og leita leiða til að ná frekari árangri með fiskveiðistjórnunarkerfið,“ segir hún. Að því leytinu til sé sleginn jákvæður og uppbyggilegur tónn í stjórnarsáttmálanum.

„Ég hins veg­ar sé að þarna er kveðið á um að það eigi að skipa nefnd. Nefndarskipanir eru orðnar vel þekkt stef í stjórnmálum þegar kemur að sjáv­ar­út­vegi, þær hafa verið æði margar í gegnum árin en um­fangið á vinnu þess­ar­ar nefnd­ar sem er boðuð er veru­legt,“ seg­ir hún OG á meðan slík vinna sé í gangi þá verði lítið um skýra stefnumörkun held­ur beðið niður­stöðu hlutaðeigandi nefndar og aðeins þá verði hafist handa við að vinna úr niðurstöðum.

„Ég ótt­ast þess vegna að enn verði beðið með að skapa heild­stæða framtíðar­sýn fyr­ir stóra út­flutn­ings­at­vinnu­grein okk­ar ís­lend­inga og mik­il­væga stoð í efna­hags­legri vel­sæld okk­ar,“ seg­ir hún að lok­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert