Orri Páll verður þingflokksformaður

Orri Páll Jóhannsson, nýr þingmaður VG.
Orri Páll Jóhannsson, nýr þingmaður VG.

Orri Páll Jóhannsson var í dag val­inn af þing­flokk­i Vinstri grænna til að gegna stöðu þing­flokks­formanns. Orri Páll er nýr þingmaður hreyfingarinnar en hann var áður varaþingmaður.

Orri Páll tek­ur við for­mennsk­unni af Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, sem verður varaformaður þingflokksins, en hún hef­ur setið á Alþingi frá 2013.

Frá þessu greinir flokkurinn í tilkynningu. Segir þar enn fremur að Bjarni Jónsson hafi verið valinn ritari þingflokks. Bjarni var áður varaþingmaður en tekur nú sæti á Alþingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert