Smit í fimm árgöngum og skólanum lokað

Skólahald í Ölduselsskóla fellur niður í dag vegna fjölda smita …
Skólahald í Ölduselsskóla fellur niður í dag vegna fjölda smita í skólanum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skólahald í Ölduselsskóla í Breiðholti fellur niður í dag vegna fjölda kórónuveirusmita hjá nemendum og starfsmönnum skólans. Þetta staðfestir Elínrós Benediktsdóttir, skólastjóri Ölduselsskóla, í samtali við mbl.is.

Frá því fyrir helgi hafa komið upp smit hjá nemendum í minnst fimm árgöngum og hjá tveimur starfsmönnum skólans, að sögn Elínrósar. Nákvæm tala yfir fjölda smitaðra liggur þó enn ekki fyrir.

„Þetta olli því að aðrir starfsmenn hafa verið sendir í sóttkví. Bæði vegna útsetningar hér innanhúss og svo eru einhverjir starfsmenn sem hafa verið útsettir fyrir smiti annarsstaðar og því er fjöldi þeirra sem hefði ekki getað mætt í skólann í dag.“

Skólastjórnendur munu taka stöðuna betur á fundi með Almannavörnum og Skóla- og frístundasviði síðdegis í dag. Ekki er ljóst hvenær skólinn mun opna að nýju.

„Við sjáum betur hvernig landið liggur eftir fundinn í dag.“

Elínrós segir alltaf vont þegar grípa þurfi til aðgerða af þessu tagi. Það sé þó nauðsynlegt í ljósi stöðunnar eins og hún er einmitt núna.

„Þetta er ekki eitthvað sem maður leikur sér að eða gerir að gamni sínu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert