Jogginggallinn jólagjöf ársins

Jólagjöf ársins 2021 er jogging gallinn.
Jólagjöf ársins 2021 er jogging gallinn. Ljósmynd/RSV

Niðurstaðan rýnihóps Rannsóknaseturs verslunarinnar er sú að jólagjöf ársins skuli vera jogging gallinn enda virðist tíðarandinn kalla á aukna vellíðan, að því er segir í tilkynningu.

Þá segir að jogginggallinn sé vinsæll meðal neytenda og seljist vel, hafi mikið notagildi enda bæði þægilegur og kósí. Þá sé gallinn bæði heimagalli en líka tískuvara og til á alla aldurshópa og öll kyn. 

„Jogginggallinn hefur á síðustu árum notið aukinna vinsælda og þróast úr því að vera íþrótta- eða heimafatnaður yfir í að vera háklassatískuvara. Í dag má finna jogginggalla frá flestum helstu tískuhúsum heims,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Covid spilar inn í 

Kemur þá fram að líklega sé það Covid-ástandið og álagið undanfarin tvö ár sem gerir það að verkum að þægindi voru allsráðandi í umræðunni. Einnig hafi aukin meðvitund um notagildi haft áhrif á svarið við rannsóknarspurningunni.

„Tillögur rýnihópsins að jólagjöf ársins einkenndust af auknum þægindum og vellíðan, einhverju notalegu og kósí, aukinni samveru og flestar hugmyndir mátti beint eða óbeint tengja við heilsu, bæði andlega og líkamlega. Tíðarandinn kallar einnig greinilega á aukna umhverfisvitund en í umræðum rýnihópsins mátti líka greina samhljóm um mikilvægi meðvitaðra neysluhátta, að vörur hefðu notagildi og væri jafnvel hægt að endurnýta,“ segir í tilkynningunni.

Air Fryer vinsælasta raftækið

Þá segir í tilkynningunni að hinn alræmda Air Fryer hafi einnig borið á góma í umræðum rýnihópsins og hann virðist vera með vinsælli raftækjum í ár.

Upplýsingar frá verslunum gáfu sömuleiðis til kynna að Air Fryer væri mest selda sérvara nóvembermánaðar en að minnsta kosti 1.600 stykki seldust í innlendum verslunum í nóvember.

„Svipar vinsældum hans jafnvel til fótanuddtækisins sem var svo vinsælt hér um árið. Líklega hafa nuddbyssur verið fótanuddtæki ársins 2020 ef marka má umræður rýnihópsins,“ segir í tilkynningunni.

Nánar má lesa um jólagjöf ársins hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert