Mynd í Mogga leiddi til hjónabands

Sr. Geir Waage fyrrverandi prestur í Reykholti gaf saman þau …
Sr. Geir Waage fyrrverandi prestur í Reykholti gaf saman þau Olgu Zoëga Jóhannsdóttir og Torfa Guðlaugsson,sem dró hring á fingur brúðarinnar. Athöfnin var mjög fámenn, en afar hátíðleg í öllu látleysi sínu. mbl.is//Sigurður Bogi Sævarson

Á köldum vetrardegi mátti greina heita ást þegar þau Torfi Guðlaugsson og Olga Zoëga Jóhannsdóttir, sem búa í Hvammi í Hvítársíðu í Borgarfirði, voru í gær, á næstsíðasta degi árs, gefin saman í hjónaband við athöfn í Gilsbakkakirkju þar í sveit. Séra Geir Waage, fv. sóknarprestur í Reykholti, annaðist athöfnina sem var látlaus og aðeins var allra nánasta fólk viðstatt. Einnig þó blaðamaður Morgunblaðsins, af sérstökum ástæðum og frásagnarverðum.

„Gæti verið áhugavert að kynnast henni“

„Ég var ekkert að leita að ástinni, sem hins vegar fann mig,“ segir húsfreyjan í Hvammi sposk á svip. Upphaf málsins er að vorið 2013 réð Olga sig til starfa sem skálavörður í húsi Ferðafélags Íslands að Valgeirsstöðum í Norðurfirði á Ströndum. Þær Olga og Sædís Myst, dóttir hennar, fóru norður í Árneshepp í júníbyrjun. Seinna í sama mánuði var sá sem þetta skrifar á Ströndum. Tók þá mynd og stutt viðtal við Olgu, sem sagði frá sér og sínu í samtali sem birtist í Morgunblaðinu 30. júní. Staðurinn grípur mig sterkum tökum, var yfirskrift viðtalsins sem fylgdi mynd af mæðgunum með hús FÍ á Valgeirsstöðum í bakgrunni.

Brúðhjónin.
Brúðhjónin. mbl.is//Sigurður Bogi

Næst segir af Torfa í Hvammi sem las viðtalið við Olgu og fannst áhugavert. „Og mér þótti þetta myndarleg kona, sem ég hugsaði með mér að gæti verið gaman að kynnast,“ segir bóndinn í Borgarfirði. Þegar hér var komið sögu lá reyndar fyrir að Torfi, sem sinnir járnsmíðum og öðru slíku jafnhliða búskap, ætti erindi norður á Strandir með öxul undir bátakerru. Þangað fór hann svo um verslunarmannahelgina en hafði þá áður spurt vini á Ströndum um Olgu og hennar hagi.

„Mér fannst ekki fráleitt að kanna hvort dæmið gengi upp og gagnkvæmur áhugi yrði til staðar. Aðstæður okkar voru svipaðar; við á líku reki og eigum bæði dætur á sama aldri,“ segir Torfi.

Dansað í Trékyllisvík

Á laugardagskvöldi um verslunarmannahelgina, 5. ágúst á því herrans ári 2013, var Olga skálavörður í gömlu fjárhúsunum á Valgeirsstöðum þegar þar birtist maður sem sagðist heita Torfi Guðlaugsson og vildi bjóða henni á ball sem var þá um kvöldið í Trékyllisvík.

Torfi í Hvammi og Hekla dóttir hans, þá Steinunn Anna …
Torfi í Hvammi og Hekla dóttir hans, þá Steinunn Anna Guðmundsdóttir móðir Torfa. Lengst til hægri er Olga, og við hlið hennar dóttirin Sædís Myst. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarson

„Ég var ekkert á leiðinni á ball og vissi ekkert hvaða maður þetta var, en úr því ég átti heimangengt þetta kvöld ákvað ég að þekkjast boðið. Hljómsveitin Blek og byttur spilaði, Diddú söng og ég dansaði við nokkra stráka, þar á meðal Torfa. Fór svo aftur í Ferðafélagshúsið, þar sem Torfi kom við daginn eftir og spurði hvort hann mætti fá símanúmerið mitt ef ég fengi sitt. Þá var ég líka búin að fá meðmæli nokkurra kórfélaga úr Söngfjelaginu, sem þarna voru næturgestir, um að Torfi væri vænn drengur. Sjálf gerði ég mér grein fyrir að hér væri kominn herramaður af gamla skólanum og góð manneskja,“ segir Olga.

Olga heldur á dóttur sinni, Sædísi Myst, í viðtalinu örlagaríka …
Olga heldur á dóttur sinni, Sædísi Myst, í viðtalinu örlagaríka frá árinu 2013. Nokkrum misserum eftir að greinin birtist barst svo blaðamanni til eyrna að bóndi í Borgarfirði hefði eftir að hann las greinina og sá myndina gert hosur sínar grænar fyrir olgu og dæmið hefði gengið upp. Þau vildu þó ekki koma í viðtal þá – eins og vert hefði verið – en lofuðu að segja mætti frá brúðkaupi þeirra þegar og ef yrði. Þann 19. desember sl. lét Olga svo vita hvað til stæði – og bauð blaðamanni til athafnar. mbl.is/Sigurður Bogi

Ekki leið á löngu uns Torfi hringdi í Olgu og nú fór boltinn að rúlla. Í september fór hún í heimsókn í Borgarfjörð til Torfa og var honum þar til halds og trausts í smíðavinnu. Allt gekk vel og fljótlega var þeim tveimur orðið ljóst að ekki yrði aftur snúið.

Ævintýrið á ábyrgð Moggans

„Ef viðtalið og myndin af Olgu og Sædísi hefði ekki komið í Mogganum hefði þetta ævintýri aldrei átt sér stað. Ábyrgð þín í málinu er mikil,“ bætir Torfi við og beinir – hlæjandi – orðum sínum til blaðamanns.

Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag.

Blaðamaður Morgunblaðsins afhendir hjónunum sendingu frá blaðinu; blóm, ársáskrift og …
Blaðamaður Morgunblaðsins afhendir hjónunum sendingu frá blaðinu; blóm, ársáskrift og útprent af viðtalinu sem leiddi til kynna Olgu og Torfa.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert