Íbúar hvattir til að spara heitt vatn

Starfsmenn Veitna að störfum. Mynd úr safni.
Starfsmenn Veitna að störfum. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í gær kom upp bilun í dælu í Rangárveitum sem sér Rangárþingi ytra og eystra og Ásahreppi fyrir heitu vatni. Af þeim sökum er lægri þrýstingur á kerfinu á öllu veitusvæðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum.

Búið er að takmarka afhendingu á heitu vatni til stórnotenda en afar mikilvægt er að allir viðskiptavinir Rangárveitna noti eins lítið heitt vatn og mögulegt er meðan á viðgerð stendur. Takist að draga úr notkun getur það komið í veg fyrir að fara þurfi í kerfisbundnar lokanir á veitusvæðinu,“ kemur fram í tilkynningunni.

Líklegt er talið að bilunin tengist því að útleysing varð í aflvél í Búrfellsvirkjun sem olli útleysingu hjá álveri Rio Tinto í Straumsvík. Við það kom tíðnihögg á rafkerfið og dælan stöðvaðist og ekki var hægt að koma henni í gang aftur.

Undirbúningur viðgerðar hófst þegar í stað en útvega þurfti efni, mannskap og krana til að hífa dæluna upp úr holunni. Ekki var hægt að hífa í gær vegna veðurs. Varadæla er á staðnum og verður sett niður í stað þeirrar biluðu.

Áætlað er að verkið taki um tvo daga og gert er ráð fyrir að fullur þrýstingur verði kominn á kerfið á miðvikudagsmorgun.

Gripið hefur verið til ýmissa aðgerða til að auka magn heits vatns inn á kerfið svo áhrif bilunarinnar verði sem minnst á heimili á svæðinu. Búið er að tengja aðra heitavatnsholu í Laugalandi inn á kerfið, haft hefur verið samband við stórnotendur um að minnka notkun sem kostur er, stýringum kerfisins hefur verið breytt auk annarra aðgerða.

Veitur hvetja fólk til að gæta þess að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en nauðsyn krefur til að spara heita vatnið en um 90% allrar notkunar fer til húshitunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert