158 beiðnir um leit að börnum

Guðmundur Fylkisson.
Guðmundur Fylkisson. mbl.is/Árni Sæberg

Leitarbeiðnir vegna týndra ungmenna sem bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í fyrra voru 158 talsins.

Guðmundur Fylkisson lögreglumaður, sem sinnir þessi verkefni af hálfu lögreglunnar, segir að beiðnirnar hafi ekki áður verið jafn fáar frá fyrsta heila árinu sem hann var í þessu starfi 2015. Mögulega má rekja það til Covid-19-faraldursins og eins gæti starf lögreglunnar og barnaverndar við leit að týndum ungmennum hafa leitt til fækkunar. Fjöldi leitarbeiðna hefur sveiflast nokkuð á milli ára og eins milli mánaða hvers árs.

„Við fengum 208 leitarbeiðnir árið 2020, árið 2019 voru þær 190 og árið 2018 komu 285 leitarbeiðnir og hafa aldrei verið fleiri,“ sagði Guðmundur.

Af leitarbeiðnunum í fyrra voru 93 vegna stúlkna og 65 vegna pilta. Að baki þessum leitarbeiðnum voru 52 einstaklingar, það er 25 stúlkur og 27 piltar. Það merkir að stúlkurnar týndust oftar en piltarnir.

Ungmennin sem leitað var að voru fædd á árabilinu 2003-2009 eða frá tólf ára og þar til þau náðu 18 ára aldri. Flest sem leitað var að í fyrra voru fædd 2005 eða á 16. ári.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert