Nokkuð útbreidd hópsýking er komin upp á lyflækningadeild B7 á Landspítalanum þar sem alls sex sjúklingar og níu starfsmenn hafa greinst með Covid-19 undanfarna daga.
Þetta kemur fram á vef spítalans.
Deildin er lokuð og verða skimanir og smitrakning áfram næstu daga en alls bættust níu sjúklingar í Covid-hópinn á spítalann frá föstudegi til sunnudags.
Á Landakoti eru þrír sjúklingar í Covid-einangrun og standa vonir til að hægt verði að aflétta af þeim í vikunni.