„Innrás í annað ríki má aldrei líða“

Guðni Th. Jóhannesson.
Guðni Th. Jóhannesson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, skrifar um innrásina í Úkraínu í færslu á facebook-síðu sinni. Þar fordæmir hann árásina og segir Úkraínu eiga að vera sjálfstætt ríki. 

„Ógnvænleg og ótrúleg ótíðindi bárust frá Úkraínu í nótt sem leið. Innrás hófst í landið, frá Rússlandi, Belarús og Krímskaga sem rússnesk stjórnvöld innlimuðu með valdi fyrir átta árum. Víða um heim er árásin fordæmd. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa talað skýrum rómi fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Skýr afstaða Alþingis liggur líka fyrir,“ skrifar Guðni.

Guðni bendir á að við Íslendingar séum smáþjóð í hörðum heimi sem vill að alþjóðlagalög séu virt og að stórveldi brjóti ekki nágranna undir sig.

Úkraína eigi að vera sjálfstætt ríki

Þá bætir hann við að í dag sé einn þjóðhátíðardaga Eistlendinga en þeir lýstu yfir sjálfstæði þennan dag árið 1918. Í febrúar 1991 fyrir rúmum 30 árum ítrekað Alþingi síðan viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Litháens.

„Eistland, Lettland og Litháen endurheimtu sjálfstæði sitt og frelsi árið 1991, sama ár og Úkraína varð sjálfstætt ríki – sjálfstætt og fullvalda ríki eins og það er enn í dag og á að vera. Við eigum að sjálfsögðu að standa með ráðamönnum og almenningi í Úkraínu, í Eystrasaltslöndum og víðar á þeim slóðum. Við megum líka horfa til Finna, vinaþjóðar okkar. Sjálfstæði og fullveldi ríkja má ekki skerðast við það að þau eigi landamæri að hernaðarveldi,“ skrifar Guðni.

Guðni segist trúa því að allur almenningur í Rússlandi vilji frið og frelsi, mannréttindi og lýðræði og segir aldna Rússa þekkja stríð af eigin raun.

„Í áranna rás hafa Íslendingar notið farsælla viðskipta við stjórnvöld í Moskvu og sjálfur á ég Rússa að vinum, naut þess á sínum tíma að læra rússnesku um skeið. Ég dáist að mörgu í rússneskri menningu, dáist að þeirri seiglu sem einkennir rússneska þjóð. En innrás í annað ríki má aldrei líða,“ skrifar Guðni að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert