Katrín hitti sendiherra Úkraínu

Olga Dibrova og Katrín Jakobsdóttir.
Olga Dibrova og Katrín Jakobsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, hittust á fundi síðdegis í dag í Stjórnarráðinu.

Í tilkynningu segir að sendiherra Úkraínu muni afhenda Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, trúnaðarbréf sitt á morgun en hún er með aðsetur í Helsinki.

„Forsætisráðherra og sendiherra Úkraínu ræddu hið grafalvarlega ástand sem skapast hefur í Úkraínu vegna innrásar Rússa. Forsætisráðherra sagði íslensk stjórnvöld fordæma innrásina sem sé skýrt brot á alþjóðalögum og alvarlegasta ógn við frið og öryggi í Evrópu um áratugaskeið,“ segir í tilkynningunni.

Tekið er fram að alvarlegust sé þó staða óbreyttra borgara í Úkraínu.

Ítrekaði stuðning Íslands

Á fundinum mun forsætisráðherra hafa ítrekað stuðning Íslands við Úkraínu og heitið áframhaldandi stuðningi Íslands við efnahagslegar þvinganir gagnvart Rússlandi til að koma á friði.

Ísland hafi þegar ákveðið að veita eina milljón evra til mannúðaraðstoðar í Úkraínu og sé reiðubúið að leggja meira af mörkum, t.d. með móttöku fólks á flótta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert