Myntin í endurnýjun lífdaga á Suðurlandi

Gunnar Thorarensen Gunnarsson og Árni Veigar Thorarensen.
Gunnar Thorarensen Gunnarsson og Árni Veigar Thorarensen.

Undanfarin fimm ár hafa Árni Veigar Thorarensen í Hveragerði og afi hans, Gunnar Thorarensen Gunnarsson í Ölfusi, smíðað skartgripi úr gömlum myntum og silfri. Fyrirtæki þeirra, Afi & ég, hefur eflst með hverju árinu og það, sem var fyrst og fremst hugsað sem áhugamál við sköpun úr íslenskri mynt, er orðið að blómlegu fyrirtæki.

„Ég byrjaði að safna íslenskri mynt þegar ég vann sem gjaldkeri hjá Olís 1967 og söfnunin náði hámarki við myntbreytinguna 1981, en þá vann ég í Landsbankanum á Akureyri,“ segir Gunnar. Safnið hafi síðan rykfallið og gleymst. Hann hafi ekki hreyft við því fyrr en þau hjónin fluttu suður 2017 og það þá öðlast nýtt líf. „Frá barnsaldri hefur Árni alltaf haft áhuga á alls konar föndri, er mjög öflugur, sérstaklega nákvæmur og gerir hlutina vel. Þegar við fluttum á Suðurlandið fannst mér tilvalið að spyrja hann hvort við ættum ekki að gera eitthvað saman og skartgripagerð úr myntinni varð úr.“

Lærðu til verka

Áður en þeir hófust handa fóru þeir á námskeið í gerð skartgripa hjá Handverkshúsinu og síðan hefur Gunnar lært að smíða úr silfri á veturna. „Við byrjuðum að vinna saman heima og þegar við fórum að hugsa um að selja gripina, þurftum við að stofna fyrirtæki og reksturinn hefur gengið mjög vel,“ heldur hann áfram. Bætir við að þetta sé töluverð vinna. „Ég smíða eitthvað daglega nema þegar ég er í fríi eins og núna í Þýskalandi.“ Hann segist reyndar alltaf vera með hugann við verkefnið og noti tækifærið, þegar hann sé erlendis, og kaupi erlenda mynt og hnífapör úr silfri á nytjamörkuðum til þess að bræða og smíða úr því. „Íslenska myntin hefur svo flætt til okkar að undanförnu því fólk vill losa sig við hana.“

Félagarnir smíða til dæmis bindisnælur, ermahnappa og hringa.
Félagarnir smíða til dæmis bindisnælur, ermahnappa og hringa.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu sem kom út 25. maí. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert