Hengill ultra í beinni

Hér eru hlauparar að nálgast Sleggjubeinsskarð við Hellisheiðarvirkjun í fyrra …
Hér eru hlauparar að nálgast Sleggjubeinsskarð við Hellisheiðarvirkjun í fyrra hlaupi. Ljósmynd/Bernhard Kristinn

Utanvegahlaupið Salomon Hengill Ultra Trail heldur áfram í dag, laugardag. Það hófst í gær með ræsingu á þeim sem lögðu af stað í 100 mílna hlaupið, eða sem nemur 163 km. Seint í gærkvöldi voru svo keppendur í 100 km hlaupið ræstir, en ræsing í styttri vegalengdirnar fer fram í dag. 

Landslið Dana keppir

Næst á dagskrá er ræsing í 26 km hlaupi þar sem landslið Dana er á meðal keppenda. Um 500 keppendur taka þátt í þessari vegalengd. 

Bein útsending er hafin vegna ræsinga í dag og stendur hún meira og minna yfir þangað til að öll hlaup hafa verið ræst og fremstu hlauparar lengstu hlaupanna verða komnir í mark.

Útsendingarnar hefjast alltaf klukkustund fyrir ræsingu og þar verður fylgst með gangi mála, rætt við keppendur og sérstakir gestir fara yfir stöðuna. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni hér á mbl.is.

Yfir þúsund manns eru skráðir í hlaupið, en ræst er frá miðbæ Hveragerðis og hlaupið í nágrenni bæjarins og í kringum Hengilssvæðið.




Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

  • Föstudagur kl. 14:00 – ræsing í 160 km hlaupinu. Bein útsending hefst kl. 13:00.
  • Föstudagur kl 22:00 – ræsing í 100 km hlaupinu og miðnæturhlaupurunum í 10, 26 og 53 km flokkum. Bein útsending hefst kl 21:00
  • Laugardagur kl 08:00 – ræsing í 53 km hlaupi. Bein útsending hefst kl 07:00 og stendur fram eftir degi.
  • Laugardagur kl 10:00 – ræsing í 10 km hlaupi.
  • Laugardagur kl 13:00 – ræsing í 26 km hlaupi.
  • Laugardagur kl 14:00 – ræsing í 5 km hlaupi.

Friðleifur Friðleifsson, þjálfari utanvegahlaupa landsliðs Íslands tók saman nokkra punkta um áhugaverða þátttakendur í hlaupunum og hverjum gæti verið gaman að fylgjast sérstaklega með, en rétt er að taka fram að þetta er á engan hátt tæmandi listi.

Hengill 100 mílur (160 km)

Lengsta vegalengd Hengill Ultra eru litlir 160 km. Þessi áskorun er fyrir þá allra hörðustu og í ár eru fimm hlauparar skráðir til leiks, allt karlar og við söknum kvennana en þær stóðu sig frábærlega í fyrra. Davíð Rúnar Bjarnason, boxarinn knái ætlar sér að takast á við þetta verkefni og ekki skemmir fyrir að Michael Schou er einnig skráður en hann er landsliðsþjálfari hjá Hjólreiðasambandinu og fanta góður hlaupari.

Salomon Hengil Ultra er nú haldin í 11. sinn en …
Salomon Hengil Ultra er nú haldin í 11. sinn en hlaupið fór fyrsta fram árið 2012. Ljósmynd/Bernhard Kristinn

 

Hengill 100 km

Í 100 km hlaupið eru skráðar nokkar rakettur. Til dæmis Maxim Sauvageon , Frakkinn knái sem býr á Íslandi og hefur getið sér gott orð í keppnum hér heima. Þá mætir Hlynur Guðmundsson en hann ætlar sér stóra hluti ef ég þekki hann rétt. Þá er Kjartan Rúnasson skráður en hann er þaulreyndur hlaupari og varð þriðji í 100 km hlaupinu 2021 og svo Felix Starker en hann er líka þaulreyndur í keppnum hér á Íslandi. Helga María Heiðarsdóttir útivistarkempa með meiru ætlar sér að klára þetta verkefni og þá eru einnig skráðar Sigrún B Magnúsdóttir og Silvia Llorens.

Mari Jarsk verður í nýju hlutverki í Salomon Hengil Ultra …
Mari Jarsk verður í nýju hlutverki í Salomon Hengil Ultra um helgina en hún hleypur „bara“ 10 km og verður ein þeirra sem stýrir útsendinguna frá mótinu á laugardaginn. Hér flýgur hún yfir marklínuna í fyrra eftir 160 kílómetra hlaup. Ljósmynd/Mummi Lú

 

Hengill 53 km

Anna Berglind Pálmadóttir, Sigurjón Ernir Sturluson og Þorsteinn Roy Jóhannesson allt landsliðsfólk í utanvegahlaupum eru skráð í 53 km hlaupið.  Þau fá heldur betur verðuga keppni frá fyrrum landsliðsfólki því Hildur Aðalsteinsdóttir, Bryndís María Davíðsdóttir og Sigríður B. Einarsdóttir eru allar skráðar og svo eru upprennandi stjörnur eins og Kristján Svanur Eymundsson að banka fast ásamt Hengils kónginum sjálfum en Búi Steinn Kárason sigurvegari í 160 km hlaupinu 2021 er skráður í þessa vegalengd.  Þetta verður veisla. Frægir, ó já þeir mæta alltaf í 53 km t.d. Arngrímur Fannar Haraldsson úr Skímó , Karen Kjartansdóttir Grænlandsjökulsfari og svo Sveinn Atli Árnason betur þekktur sem Svenni í Bootcamp.  Þá eru margir erlendir hlauparar skráðir í 53 km hlaupið og þar leynast nokkrir sterkir.

Hengill 26 km

Hér eru tæplega 500 skráðir hlauparar og því langt mál að telja upp þá sterkustu en helsta fréttin er sú að landslið Dana í utanvegahlaupum mætir í þessa veglengd og ætlar sér stóra hluti. Þar erum við að fá í heimsókn gífurlega sterka hlaupara , fjórar konur og fjóra karla.  Þau fá hins vegar verðuga keppni því Andrea Kolbeinsdóttir landsliðskona ætlar sér að sýna þeim hvernig þetta er gert hér á Íslandi sem og landsliðshlaupararnir Íris Anna Skúladóttir og Þórólfur Ingi Þórsson.  Þau eru öll skráð í 26 km hlaupið og munu berjast við Danina.

Hér eru nokkrir sprækir Hvergerðingar að busla sig í gegnum …
Hér eru nokkrir sprækir Hvergerðingar að busla sig í gegnum 10 km brautina sem er einkar fjölbreytt. Ljósmynd/EB


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert