Illa gengur að selja Alliance-húsið

Leyfisbeiðendur vilja breyta gatnamótunum þannig að lóð Alliance-hússins verði framlengd …
Leyfisbeiðendur vilja breyta gatnamótunum þannig að lóð Alliance-hússins verði framlengd út yfir hringtorgið fremst á myndinni. mbl.is/sisi

Ítrekaðar tilraunir Reykjavíkurborgar til að selja Alliance-húsið á Grandagarði 2 hafa ekki lukkast. Nú hefur borgarráð samþykkt að hefja enn á ný söluferli á húsinu og byggingarrétti á lóð þess.

Í greinargerð fjármála- og áhættustýringarsviðs borgarinnar til borgarráðs kemur fram að Reykjavíkurborg festi kaup á Grandagarði 2 árið 2012. Ytra byrði hússins er friðað og hóf borgin framkvæmdir fljótlega eftir kaupin. Var ytra byrðið gert upp í anda fyrri tíma. Þetta var upphaflega fiskvinnsluhús og hófst bygging þess 1924. Í dag er starfrækt í húsinu Sögusafnið og veitingastaðurinn Matur og drykkur ásamt því að nokkrir listamenn hafa aðstöðu á efri hæðum.

Nýting var aukin á lóðinni

Fram kemur í greinargerðinni að ákveðið hafi verið að vinna nýtt deiliskipulag fyrir húsið og umhverfi þess sem myndi miða að því að auka nýtingu á lóðinni. Skipulagið var samþykkt í borgarráði í mars 2018.

Á fundi borgarráðs 28. júní 2018 var samþykkt að hefja söluferli á fasteigninni og meðfylgjandi byggingarrétti með samkeppnisfyrirkomulagi. Með hliðsjón af sögulegu mikilvægi hússins og staðsetningar var lagt til að í stað beinnar sölu væri haldin samkeppni þar sem kaupverð myndi hafa 50% vægi en matsblað þar sem umsóknir yrðu metnar eftir ákveðnum þáttum eins og hugmyndafræði, hönnun og samráði við nærumhverfi myndi hafa 50% vægi. Tilboð áttu að innihalda greinargerð þar sem umsækjandi gerði grein fyrir hugmyndum sínum um uppbyggingu á reitnum ásamt uppdráttum. Þrjú tilboð bárust í eignina, það lægsta 300 milljónir, það næsta 650 milljónir og það hæsta 900 milljónir. 

Fréttina í heild sinni er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka