Gunnar Axel ráðinn bæjarstjóri Voga

Gunnar Axel Axelsson er viðskipta- og stjórnsýslufræðingur að mennt.
Gunnar Axel Axelsson er viðskipta- og stjórnsýslufræðingur að mennt. Ljósmynd/Sveitarfélagið Vogar

Gunnar Axel Axelsson, viðskipta- og stjórnsýslufræðingur, hefur verið ráðinn bæjarstjóri sveitarfélagsins Voga.

Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins en alls sóttu 40 umsækjendur um starfið og sex drógu umsóknir sínar til baka.

Gunnar Axel hefur starfað sem deildarstjóri á efnahagssviði Hagstofu Íslands frá árinu 2005. Þá var hann aðstoðarmaður velferðarráðherra á árunum 2012-2013.

Gunnar Axel sat í bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar á árunum 2010-2018 og sinnti m.a. formennsku í bæjarráði og fjölskylduráði auk annarra nefndarstarfa. Þá sat hann í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga um árabil, í stjórnum Strætó Bs og Rio Tinto Alcan á Íslandi og í nefnd ráðherra sveitarstjórnarmála um stöðu og framtíð sveitarstjórnarstigsins.

Gunnar Axel lauk MPA gáðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2014, BS gráðu í viðskiptafræðum frá Háskólanum á Bifröst árið 2003 og stundaði nám í Evrópufræðum við Viðskiptaháskólann í Árósum 2003-2004.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert