Boðuð í skýrslutöku á ný

Blaðamennirnir fjórir sem lögreglan á Norðurlandi eystra hefur boðað í …
Blaðamennirnir fjórir sem lögreglan á Norðurlandi eystra hefur boðað í yfirheyrslu vegna meintra brota á friðhelgi einkalífsins. Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Kjarnanum, Þóra Arn­órs­dóttiur, rit­stjóri Kveiks á Rík­is­út­varp­inu og Þórður Snær Júlí­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, Samsett mynd

Blaðamennirnir fjórir, sem notið hafa réttarstöðu sakborning vegna meintra brota á friðhelgi einkalífs, hafa verið boðaðir til skýrslutöku að nýju af lögreglunni á Norðurlandi eystra. 

Þetta kemur fram í frétt Ríkisútvarpsins. Þegar er búið að taka skýrslu af tveimur þeirra. 

Blaðamennirnir sem um ræðir eru þau Aðalsteinn Kjartansson á Stundinni, Þóra Arnórsdóttir á Ríkisútvarpinu, Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson á Kjarnanum. 

Hlutu þau réttarstöðu sakbornings vegna umfjöllunar um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja, nokkra starfsmenn fyrirtækisins, sem þótti það ekki ganga nógu hart í vörn sinni vegna frétta af umsvifum þess í Namibíu. 

Þar á meðal Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, en hann hefur lagt fram kæru til lögreglu vegna stuldar á síma og notkunar á gögnum úr honum. 

Þórður Snær og Arnar Þór mættu í skýrslutöku í dag, en Þóra og Aðalsteinnn bíða sinnar skýrslutöku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert