Stór hluti rafhleðslukerfisins lá niðri

Hleðslustöðvar lágu niðri víða.
Hleðslustöðvar lágu niðri víða. Ljósmynd/ON

Stór hluti af rafhleðslukerfi Orku náttúrunnar datt út í um klukkustund laust eftir hádegi í dag og kom það nokkrum að óvörum. 

Um 25 mínútur tók að laga vandann sem stafaði af uppfærslu í kerfinu og eru stöðvarnar aftur komnar í lag.

Þetta staðfestir Haraldur Sigfús Magnússon, markaðsstjóri Orku náttúrunnar. 

Í flestum tilfellum var um minni stöðvarnar að ræða en einnig duttu hraðhleðslustöðvar út. Vandinn hefur nú verið leystur að loknu greiningarferli hjá fyrirtækinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert