Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að sýslumaður Íslands verði staðsettur á Húsavík eftir sameiningu allra sýslumannsembætta landsins undir eina stjórn. Byggir ráðherra ákvörðun sína um staðsetningu sýslumanns ekki síst á greiningu Byggðastofnunar.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra kynnti í sumar drög að frumvarpi um sameiningu sýslumannsembættanna níu undir eina stjórn. Hann lýsti því strax yfir að sýslumaður Íslands yrði staðsettur á landsbyggðinni. Jafnframt var Byggðastofnun falið að leggja mat á staðina og svæðin. Ráðherra hefur nú sent erindi á þingflokka stjórnarflokkanna um niðurstöðu sína. Hann staðfesti við Morgunblaðið að staðurinn væri Húsavík.
Nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.