Mögulegt að kennsla tefjist á mánudaginn

Ljósmynd/ Valgarður Gíslason

Enn er verið að rannsaka hvernig netárás á Tækniskólann bar að. Að sögn yfirkerfisstjóra skólans var skólinn krafinn um lausnargjald en ekki kom til greina að greiða það. Þá er hugsanlegt að kennsla kunni að tefjast á mánudaginn.

„Það er verið að reyna finna út hvenær þetta byrjaði og þá hugsanlega hvaðan þetta kom, en við erum ekki komin það langt,“ segir Tryggvi Jóhannsson, yfirkerfisstjóri hjá Tækniskólanum, í samtali við mbl.is. Bætir hann við að öryggisfyrirtækið Syndis aðstoði skólann við málið.

Árásin var framin snemma í gær, en trufl­an­ir höfðu orðið á innra neti skól­ans og í fyrstu var talið að um bil­un væri að ræða. Eft­ir bilana­grein­ingu kom í ljós að um netárás var að ræða.

Skólinn sé í góðum málum

Að sögn Tryggva kröfðust tölvuþrjót­arn­ir lausnargjalds. Segir hann að aldrei hafi komið til greina að greiða gjaldið og að skólinn sé með gott úrræði til vara. 

„Við erum í mjög góðum málum og myndum aldrei koma til með að greiða einhverjum til að opna einhver gögn aftur. Við þurfum ekkert á því að halda. Við erum í ansi góðum málum en þetta gæti hugsanlega tafið kennslu á mánudag en vonandi ekki.“

Bætir hann við að nemendur muni fá send skilaboð í gegnum Innu ef kennsla tefst á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert