Þrjár líkamsárásir tilkynntar í miðbænum

Einn var handtekinn í tengslum við líkamsárás í nótt.
Einn var handtekinn í tengslum við líkamsárás í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrjár mismunandi tilkynningar bárust lögreglu um líkamsárásir í miðbænum í nótt. Einn var handtekinn í tengslum við eina þeirra og var hann vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Þá var einnig tilkynnt um einstakling að reyna að brjótast inn í hverfi 105 og var sá handtekinn og vistaður í fangaklefa i þágu rannsóknar málsins. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þar segir einnig að sautján bifreiðar hafi fengið sektir vegna stöðubrots í miðbænum. Auk þess voru tvær bifreiðar stöðvaðar þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert