Fuglaflensa greinist enn: Settust á varðskip og drápust

Fuglaflensa hefur meðal annars greinst í svartbökum á Suðurnesjum í …
Fuglaflensa hefur meðal annars greinst í svartbökum á Suðurnesjum í september. mbl.is/Ómar Óskarsson

Skæð fuglaflensa greinist enn í villtum fuglum hér á landi. Því er ekki óhætt að aflétta varúðarráðstöfunum sem fyrirskipaðar voru í mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun, en faraldurinn er viðvarandi annars staðar í Evrópu og víðar. Segir stofnunin að mikilvægt sé að fólk tilkynni um veika og dauða fugla.

Nú í lok október hafa flestar tegundir farfugla yfirgefið landið og er því fuglastofninn að verða samsettur af þeim tegundum sem dvelja hér yfir veturinn. Þeir sjófuglar sem hafa orðið verst úti af völdum fuglaflensu í ár eru flestir komnir út á sjó eða til annarra vetrardvalastaða. Þar af leiðandi hefur dregið úr smithættu frá þeim, en hún er þó ekki yfirstaðin, að sögn Matvælastofnunar.

Súlur halda sig að hluta til við strendur landsins yfir vetrartímann og mun skýrast með tímanum hvernig faraldurinn þróast í þeim, en mjög fáar ábendingar hafa borist í október frá almenningi um dauðar súlur.

Þá segir að skæð fuglaflensa hafi nýverið greinst í svartbökum á Suðurnesjum, nánar til tekið í Sandgerði og í Garði, en vart hafði orðið við aukin dauðsföll í þeirri tegund í september.

Þá greindist einnig skæð fuglaflensa í skúmum í september og fjöldi máva og skúma settust niður veikir á varðskip Landhelgisgæslunnar og drápust þar. Sýni voru tekin úr fjórum skúmum úr þessum hópi og greindist fuglaflensa í þeim öllum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert